Fyrsta fimmtudagsmót sumarsins fór fram í blíðskaparveðri á Nesvellinum í gær. Mótið sem var innanfélagsmót átti í raun að vera það þriðja og síðasta í röðinni en var eins og áður sagði það fyrsta þar sem að hinum tveimur var frestað þar til síðar í sumar vegna veðurs. Ágætis mæting var í mótið en 38 kylfingar voru skráðir til leiks. Einungis 29 skiluðu þó skorkorti og er það mjög miður þar sem að það kemur niður á heildarútreikningi mótsins. Mjög gott skor leit dagsins ljós enda buðu aðstæður svo sannarlega til góðra afreka. Afrek dagsins átti þó unglingurinn Sigurður Örn Einarsson en hann náði draumahögginu á 5. holu. Sigurður notaði 7. járn við höggið og að eigin sögn skoppaði kúlan tvisvar áður en hún hvarf þeim sjónum. Sigurður lék með föður sínum, Einari Magnúsi Ólafssyn í mótinu og þar sem að skyggnið var þannig sökum sólar að þeir voru ekki vissir um hvort kúlan væri í holunni eða ekki, tók Sigurður upp fjarlægðarkíki til þess að vera viss. Þegar engin kúla sást í kíkinum var hlaupið í átt að holunni þar sem kúlan var og upphófust að sjálfsögðu mikil fagnaðarlæti. Nesklúbburinn óskar Sigurði innilega til hamingju með frábært afrek. Þess má geta að þetta var aðeins í sjötta skiptið sem farið hefur verið holu í höggi á fimmtu holu. Helstu úrslit í mótinu urðu annars eftirfarandi:
Punktakeppni:
1. sæti – Valur Kristjánsson – 41 punktur
2. sæti – Óskar Dagur Hauksson – 40 punktar
3. sæti – Hinrik Þráinsson – 40 punktar
Besta Skor:
Ólafur Björn Loftsson – 66 högg