Hreinsunardagurinn á morgun

Nesklúbburinn

Hinn árlegi hreinsunardagur verður haldinn á morgun. Á eftir hreinsun og sígildri pylsuveislu í boði klúbbsins sem framreidd verður af Hafsteini og félögum á Ljóninu verður þeim sem að tóku þátt í hreinsuninni boðið að taka þátt í 9 holu Texas scramble golfmóti. 

Ómetanlegt starf hefur á þessum degi verið unnið fyrir klúbbinn í gegnum tíðina. Næg verkefni liggja fyrir í þetta skiptið og eru því allir félagsmenn hvattir til þess að mæta í drullugallanum og með vinnuhanska tímanlega kl. 09.45.