KÆRU NK KONUR
Nú fer að styttast í að golfsumarið hefjist. Sem þýðir að nú er komið að hinu árlega Kikk-off kvöldi sem verður haldið þriðjudaginn 12. maí kl. 18.00. Skráning er hafin á Golfbox (sjá neðar)
Ætlunin er fyrst og fremst að koma saman, skemmta okkur og borða létta máltíð. Hámarksfjöldi eru 80 NK konur og því gott að skrá sig sem fyrst. Skráning hefst á Golfbox kl. 12.00 þriðjudaginn 5. maí nk. og það þurfa allar að skrá sig þar inn sem ætla að mæta, í síðasta lagi 10. maí kl. 17.00. Hægt er að skrá sig með því að smella: hér
Einnig er hægt að skrá sig í gegnum appið „Mitt golf“. Opna appið/Valmynd/Golfbox/Mótaskrá
Verðið er 6.000 kr.og greitt er við skráningu í gegnum golfbox. Vipp-meistari og Pútt-drottning vetrarins verða krýndar og við verðum með óvæntan glaðning og uppákomu. Við förum yfir mót sumarsins og rennum yfir breytingar á vellinum. o.fl. Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á að styrkja tengslin og sameinast um kröftugt spilasumar. Sérstaklega viljum við bjóða nýjar félagskonur velkomnar, en þetta kvöld er tilvalið til þess að kynnast og sjá hvað hið öfluga kvennastarf klúbbsins hefur upp á að bjóða.
Hlökkum til að sjá ykkur og hefja golfsumarið saman.
Bestu kveðjur,
Fjóla, Elsa, Inga Rós og Elín

