Innheimta félagsgjalda 2019

Nesklúbburinn

Félagsgjöld fyrir árið 2019 voru samþykkt á aðalfundi klúbbsins og má sjá hér á síðunni undir umnk/gjaldskrá.  Eins og áður verða félagsmönnum boðnar þrjár leiðir til að standa skil á félagsgjöldum sínum og eru þær eftirfarandi:

1.  VISA/EURO: dreift á 6 jafnar greiðslur, fyrsta greiðsla í byrjun janúar.
2.  Einn greiðsluseðill: Eingreiðsla með gjalddaga 1. janúar 2019 og eindaga 15. janúar 2019.
3.  Fjórir greiðsluseðlar: Dreift á fjórar jafnar greiðslur, gjalddagar 1. janúar, 1. febrúar, 1. mars og 1. apríl og eindagar 15. hvers mánaðar.

Þeir sem vilja breyta greiðslufyrirkomulagi sínu frá fyrra ári þurfa að láta vita á netfangið nkgolf@nkgolf.is fyrir fimmtudaginn 13. desember – ekki verður tekið við breytingum eftir þann tíma.

ATH: það þarf EKKI að láta vita ef greiðslufyrirkomulag skal haldast óbreytt frá fyrra ári