Kick-off fundur NK-kvenna

Nesklúbburinn

Kæru NK konur, 

Við viljum minna ykkur á að Kick-off fundurinn okkar er handan við hornið, eða þriðjudaginn 5.maí kl. 18. Undirtektir hafa verið góðar en skráningu líkur kl. 16 á mánudag. 

Ásamt því að koma saman og borða létta máltíð verður farið yfir nýjar reglur vallarins. Einnig verður farið yfir mót sumarsins sem nefndin stendur fyrir. Boðið verður upp á tískusýningu frá Abacus, Company og JLindeberg sem sýna okkur allt það nýjasta í golftískunni. Einnig verða ýmsir skemmtilegir golf fylgihlutir til sölu á góðu verði.  Boðið verður upp á austurlenska kjúklingasúpu með brauði og salati að hætti Veislunnar á góðu verði eða kr. 1.820.- 

Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á vettvang til að koma saman, kynnast og sameinast um kröftugt spilasumar.  Við bjóðum nýja meðlimi klúbbsins sérstaklega velkomna. ( Þær sem eiga eftir að skrá sig geta skráð sig hér).

Við hlökkum til að sjá ykkur allar!

Bestu kveðjur,

Kvennanefndin
Bryndís, Fjóla, Hildur og Tóta.