Lokamót kvenna á sunnudaginn – skráningu lýkur á laugardaginn

Nesklúbburinn

Lokamót NK kvenna verður haldið sunnudaginn 23. ágúst á Nesvellinum. Mæting er kl. 9:30 og verður ræst út kl. 10:00 á öllum teigum. 

Það verður keppt í þremur forgjafarflokkum. Mótið er 9 holu punktakeppni 

Forgjafarflokkur I: vallarforgjöf  0 – 19
Forgjafarflokkur II: vallarforgjöf 20 – 29
Forgjafarflokkur III: vallarforgjöf 30-42

Að móti loknu verður boðið upp á ljúfengan mat að hætti Veislunnar og verðlaunaafhending. Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í hverjum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg (þarf að vera á braut), fyrir nándarverðlaun á 2. og 5. holu, (þarf ekki að vera á flöt). Að lokum verður dregið úr skorkortum og Áslaugarbikarinn afhentur. 

Opnað var fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 17. ágúst. Skráningu líkur föstudaginn 21. ágúst. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 9 og 16. Gjald fyrir mat og mót 3.200 kr. 

Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! 

Bestu golfkveðjur,
Kvennanefndin