Lokamót kvenna haldið 25. ágúst

Nesklúbburinn

Lokamót NK kvenna verður haldið sunnudaginn 25. ágúst á Nesvellinum. Mæting er kl. 9:30 og verður ræst út kl. 10:00 á öllum teigum. 

Nýtt í ár að það verður keppt í þremur forgjafarflokkum. Mótið er 9 holu punktakeppni.        

  • Forgjafarflokkur I: Grunnforgjöf  0 ? 19,9
  • Forgjafarflokkur II: Grunnforgjöf 20- 29,9
  • Forgjafarflokkur III: Grunnforgjöf 30-42 
  • Að móti loknu verður boðið upp á ljúfengan mat að hætti Kristjáns og verðlaunaafhendingu.
    • Veitt verða verðlaun fyrir 1.? 3. sæti í hvorum flokki,
    • Fyrir lengsta upphafshögg, þarf ekki að vera á braut
    •  Nándarverðlaun á 2. og 5. Holu, þarf ekki að vera á flöt.
    • Einnig verður dregið úr skorkortum 
    • Áslaugarbikarinn afhentur. 

Opnað verður fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 19. ágúst. Skráningu líkur föstudaginn 24. ágúst. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 9 og 16. Gjald fyrir mat og mót er 3.900 kr. 

Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! 

Bestu golfkveðjur,
Kvennanefndin