Kæri þátttakandi í Meistaramóti Nesklúbbsins 2026,
* Búið er að birta rástímatöflu á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is (smella hér). Þar má sjá hvenær hver flokkur leikur á hverjum degi. Það skal tekið fram að taflan er birt með fyrirvara um breytingar.
* Það liggur fyrir að til þess að koma öllum fyrir má vera að fyrstu dagarnir eitthvað tímafrekari en við eigum að venjast. Við viljum því minna ykkur á að taka þolinmæðina og góða skapið með í golfpokann, það gerir allt miklu auðveldara og skemmtilegra.
* Svo ef við sameinumst um að passa upp á að missa ekki ráshópinn á undan of langt framúr okkur þá verður gott flæði og þá verður þetta allt í góðu lagi. Það er fínt viðmið að hugsa það þannig að ef það er meira en ein braut í næsta ráshóp þá þurfum við að ganga aðeins hraðar á milli þess sem við tökum næsta högg. Það verður starfsmaður á vegum klúbbsins sem mun keyra um í þeim tilgangi að halda leikhraða. Ef bíllinn er að fylgja þínum ráshóp að þá er það merki um að þið þurfið að ganga hraðar og ná næsta ráshóp.
* Allar upplýsingar um rástíma og úrslit mótsins má sjá á golfbox. Rástímar eru birtir á hverju kvöldi þegar allir flokkar hafa lokið leik þann daginn. Þú munt líka fá tilkynningu um rástímann þinn sendan með tölvupósti.
* Við viljum hvetja þig til þess að mæta tímanlega og koma þannig í veg fyrir óþarfa stress
* Golfreglurnar eiga það til að flækjast aðeins fyrir okkur í Meistaramótinu þar sem öllum reglum skal fylgt. Það ætlast enginn til þess að þú kunnir allar golfreglurnar. Þess vegna er alltaf dómari boðinn og búinn til þess að aðstoða þig í síma: 899-5775. Ef af einhverjum orsökum þú nærð ekki í hann eða hann er ekki á staðnum er öruggasta leiðin að leika tveimur boltum og fá svo úrskurð þegar þú hefur lokið leik.
* Merkjum alltaf boltann okkar áður en við hefjum leik og göngum úr skugga um að í hvert skipti áður en við sláum að þá séum við að slá réttan bolta. Ef einhver slær rangan bolta og það fattast áður en holan er kláruð að þá eru það tvö högg í víti. Ef það fattast ekki fyrr en eftir að hafið er leik á næstu holu að þá er það frávísun úr mótinu – það viljum við ekki, merktu boltann og vertu viss hvaða bolta þú ert að fara að slá – alltaf.
* Það þurfa allir að skila skorkorti að leik loknum. Munið að maður ber fyrst og fremst ábyrgð á eigin korti, að það sé rétt fyllt út, niðurstöðutölur liggja fyrir og undirritað af bæði leikmanni og ritara. Svo skilar maður alltaf eigin skorkorti. Það er alveg frjálst að láta annan gera það en ef kortið er rangt að þá er það á manns eigin ábyrgð.
*Athugið að fallreiturinn á 4. braut er eingöngu fyrir það að ef boltinn manns stöðvast á veginum. Ef boltinn fer út í rautt svæði og maður ákveður að kaupa sér lausn út úr því að þá er það samkvæmt golfreglunum – tvær kylfulengdir til hliðar eða eins langt aftur á línu og maður vill. Fyrir það er eitt högg í víti.
* Við höfum tekið saman algengustu spurningar/reglur sem upp koma í mótum á Nesvellinum. Þessa samatekt má sjá á heimasíðunni, nkgolf.is (smella hér) . Við hvetum þig til að lesa í gegnum þetta ef þú hefur tök á, það getur bara hjálpað til.
* Ef eitthvað er má alltaf leita okkar í mótsstjórn eða til starfsfólks mótsins. Á meðan verið er að spila á hverjum degi er alltaf einhver til taks inni á skrifstofunni í golfskálans – vertu ófeiminn, það er engin spurning röng eða asnaleg.
* Munum að heiðarleiki, tillitssemi og kurtesi eru einkennisorð okkar fallegu íþróttar sem heitir golf. Höfum það að leiðarljósi – það kostar ekkert.
Við óskum þér góðs gengis í Meistaramótinu 2026 en umfram allt góðrar skemmtunar.
Með golfkveðju;
Mótsstjórn Meistaramóts Nesklúbbsins 2026

