Ólafur Björn nálægt vallarmeti sínu í mótinu í dag

Nesklúbburinn Almennt

Þrátt fyrir tiltölulega mikið rok var mæting á Opna Þjóðhátíðardagsmótið sem haldið var á Nesvellinum í dag mjög góð, en 110 kylfingar voru skráðir til leiks.  Mótið sem haldið var í samstarfi við ICELANDAIR heppnaðist afar vel og sáust mjög góð tilþrif kylfinga inn á milli.  Senuninni stal þó að öllum öðrum ólöstuðum Ólafur Björn Loftsson, margafaldur klúbbmeistari Nesklúbbsins en hann lék á 63 höggum, 9 höggum undir pari vallarins og aðeins tveimur höggum frá vallarmetinu sem hann á sjálfur.  Ólafur lék fyrri níu holurnar á 34 höggum eða tveimur höggum undir pari en skipti heldur betur um gír á seinni níu holunum sem hann lék á 29 höggum.  Þess má til gamans geta að á 12 holu kom Hrefna unnusta Ólafs og gekk með honum það sem eftir lifði hrings honum til stuðnings.  Þessar 7 holur sem hún gekk með, lék Ólafur á 7 höggum undir pari þar sem hann fékk 5 fugla og einn örn.  Það má því væntanlega búast við að Hrefna komi fyrr leiks í næsta móti.  Helstu úrslit mótsins urðu annars eftirfarandi:

Höggleikur:

1. sæti – Ólafur Björn Loftsson, NK – 63 högg

2. sæti – Haukur Óskarsson, NK – 69 högg

3. sæti – Oddur Óli Jónasson, NK – 72 högg

Punktakeppni:

1. sæti – Ólafur Björn Loftsson, NK – 41 punktur

2. sæti – Haukur Óskarsson, NK – 41 punktur

3. sæti – Hulda Bjarnadóttir, NK – 41 punktur

Nándarverðlaun:

2./11. hola – Kristinn Ingi Jónsson, NK –  1,88 metra frá holu

5./14. hola – Jónatan Jónatansson, NK –  1,57 metra frá holu

8./17. hola í tveimur höggum – Haukur Óskarsson ,NK –  80 cm frá holu

Nánari úrslit úr mótinu má sjá á golf.is