Golfsamband Íslands og Landssamband eldri kylfinga tillkynntu í dag hvaða kylfingar myndu spila fyrir Íslands hönd í verkefnum þeirra í sumar og haust. Nesklúbburinn á þar tvo kylfinga sem verður að teljast ansi vel af sér vikið. Ólafur Björn Loftsson, sem verið hefur fastamaður í landsliði Íslands undanfarin ár, fer á Evrópumót karlaliða sem haldið verður í Portúgal í byrjun júlí og svo aftur á Evrópumót einstaklinga sem haldið verður í Svíþjóð í byrjun ágúst. Er Ólafur aðeins annar tveggja kylfinga sem valdir voru til þess að fara á bæði mótin. Eggert Eggertsson spilaði sig inn í landsliðið skipað kylfingum 55 ára og eldri með forgjöf sem tekur þátt í Evrópumótinu sem haldið verður í Bratislava í Slóvakíu um miðjan ágúst. Er þetta fyrsta árið sem Eggert hefur átt kost á því að leika á mótaröð eldri kylfinga. Nesklúbburinn óskar þeim báðum til hamingju og óskar þeim velfarnaðar í þessum verkefnum.