Opna EVRÓPUFERÐIR fór fram á Nesvellinum í dag. Það voru tæplega 200 þátttakendur skráðir í mótið sem er 9 holur og voru veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleik án forgjafar og í punktakeppni með forgjöf ásamt nándarverðlaunum. Tveir voru jafnir í höggleik án forgjafar á 34 höggum og var því kallað til bráðabana eins og fram kemur í keppnisskilmálum mótsins. Þar mætti Ólafur Marel Árnason einn til leiks og var því krýndur sigurvegari mótsins. Helstu úrslit urðu annars eftirfarandi:
Höggleikur:
1. sæti: Ólafur Marel Árnason, NK – 34 högg
2. sæti: Valdimar Ólafsson, GL – 34 högg
3. sæti: Sveinn Þór Sigþórsson, NK – 35 högg
Punktakeppni:
1. sæti: Baldur Rafnsson, NK – 23 punktar
2. sæti: Signý Vala Sveinsdóttir, NK – 22 punktar
3. sæti: Aníta Ösp Ingólfsdóttir, GBR – 21 punktur
Aukaverðlaun:
2. braut: Næst holu í 1. höggi: Skarphéðinn Egill Þórisson, NK – 2,81 metrar frá holu
5. braut: Næst holu í 1. höggi: Skarphéðinn Egill Þórisson, NK 46 cm. frá holu
8. braut: Næst holu í 2. höggi: Valdimar Ólafsson, GL – fékk örn, fór holuna á tveimur höggum
9. braut: Næst holu í 1. höggi: Felix Leó Helgason, NK – metra frá holu
Vinningshafar geta nálgast vinninga sína á skrifstofu klúbbsins á milli kl. 09.00 og 17.00
Nánari úrslit í mótinu má sjá með því að smella hér

