Hið árlega 17. júní mót á Nesvellinum heitir í ár OPNA EVRÓPUFERÐIR. Ferðaskrifstofan EVRÓPUFERÐIR kom í vor inn sem nýr og einn af stærstu styrktaraðilum Nesklúbbsins og gerir það m.a. heldur betur með glæsibrag með veglegum verðlaunum í þetta fjölmennasta og stærsta eins dags mót sem haldið er á Nesvellinum á ári hverju.
EVRÓPUFERÐIR býður meðal annars upp á fjöldann allan af fjölbreyttum golfferðum á frábæra áfangastaði eins og sjá má á heimasíðunni þeirra, evropuferdir.is sem við hvetjum félagsmenn til að skoða.
Mótið þann 17. júní er eins og áður opið 9 holu mót og eru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og þrjú efstu sætin í punktakeppni ásamt nándarverðlaunum. Skráning er hafin á Golfbox eða með því að smella hér.
Hámarksforgjöf gefin í mótinu: 28
VERÐLAUN:
Höggleikur:
1. sæti – kr. 100.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
2. sæti – kr. 60.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
3. sæti – kr. 40.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
Punktakeppni:
1. sæti – kr. 100.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
2. sæti – kr. 60.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
3. sæti – kr. 40.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
Nándarverðlaun:
2. braut – næst holu í einu höggi – kr. 20.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
5. braut – næst holu í einu höggi – kr. 20.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
9. braut – næst holu í einu höggi – kr. 20.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
8. braut í tveimur höggum – kr. 20.000 gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM
Skilmála og nánari upplýsingar má sjá á Golfbox (smella hér).
.

