Mjög góð þátttaka var í púttmóti klúbbsins í dag sem haldið var að venju í laugardalshöllinni. Þrír kylfingar urðu efstir og jafnir á 28 höggum, þeir Rúnar Geir Gunnarsson, Dagur Jónasson og Haukur Óskarsson. Að loknum útreikningum stóð Rúnar Geir uppi sem sigurvegari, Dagur í öðru sæti og Haukur í því þriðja. Þess ber að geta að næsta sunnudag verður ekki púttmót sökum útleigu laugardalshallarinnar og verður næsta púttmót því sunnudaginn 3. apríl. Stigagjöf dagsins var eftirfarandi:
12 stig – Rúnar Geir Gunnarsson
10 stig – Dagur Jónasson
8 stig – Haukur Óskarsson
7 stig – Valur Guðnason
6 stig – Guðmundur Örn Árnason
5 stig – Þórarinn Gunnar Birgisson
4 stig – Steinn Baugur Gunnarsson
3 stig – Einar M. Einarsson
2 stig – Örn Baldursson
1 stig – Haraldur Kristjánsson
Í heildarstigagjöfinni urðu nokkrar sviptingar þar sem meðal annars Dagur Jónasson stakk sér upp fyrir Guðmund Örn Árnason og tók þannig forystu. Einungis þrjú mót eru eftir og stefnir allt í mjög spennandi keppni á lokasprettinum. Heildarstaðan að loknu móti dagsins er eftirfarandi:
1. sæti -Dagur Jónasson – 73,5 stig
2. sæti -Guðmundur Örn Árnason – 71,5 stig
3. sæti – Valur Guðnason – 69,5 stig
4. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 62 stig
5. sæti – Ágúst Þorsteinsson – 41 stig
6. sæti – Haukur Óskarsson – 32,5 stig
7. sæti – Arnar Friðriksson – 29,5 stig
8. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson – 29 stig
9. sæti – Gunnlaugur Jóhannsson – 18 stig
10. – 11. sæti – Örn Baldursson – 17 stig
10. – 11. sæti – Einar M. Einarsson – 17 stig