Ráshópar tilbúnir fyrir shoot-out

Nesklúbburinn Almennt

Búið er að draga í ráshópa fyrir höggleikinn í Einvíginu á Nesinu, hinu árlega góðgerðarmóti sem fram fer á mánudaginn á Nesvellinum.  Höggleikurinn er fyrst og fremst hugsaður sem æfingahringur fyrir keppendur  mótsins en í fyrsta skipti í ár mun hann skipta miklu máli fyrir tvo kylfinga.  Samkvæmt reglugerð mótsins mun einn þeirra tíu kylfinga sem keppa í Einvíginu vinna sér inn þátttökurétt með sigri í þeim þremur opnu mótum sem fram fara á Nesinu fram að Einvíginu.  Í ár voru það þeir Ólafur Björn Loftsson, sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins, Nökkvi Gunnarsson, siguvegari Opna Úrval-Útsýn og Þórarinn Gunnar Birgisson, sigurvegari Radisson Blu – Hótel Saga mótsins sem unnu sér inn þátttökurétt.  Ólafur Björn á því miður ekki heimagegnt þar sem hann verður að keppa fyrir Íslands hönd í evrópumóti einstaklinga sem fram fer í Svíþjóð í vikunni.  Það verða því Nesmennirnir Nökkvi og Þórarinn Gunnar sem munu keppa sérstaklega í höggleiknum um morguninn og mun sá sem fer 9 holurnar á færri höggum vinna sér inn þátttökurétt í Einvíginu sjálfu.  Höggleikurinn mun hefjast klukkan 10.00 á mánudagsmorgunn og má sjá skipan ráshópanna má sjá á golf.is