Rástímar, boltavélin, salerni o.fl.

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Nokkrir punktar bara:

  • Það verður opið inn á flatir og teiga þar til annað verður tilkynnt
  • Það er áfram nauðsynlegt að skrá sig á rástíma
  • Það þarf EKKI að staðfesta rástímann en sýnum þá tillitsemi að afbóka okkur tímanlega ef við ætlum ekki að nýta bókaðan tíma
  • Ef af einhverjum ástæðum það mun þurfa að loka vellinum með stuttum fyrirvara sem væri þá í flestum tilvikum vegna t.d. frosts að þá verða rástímarnir afbókaðir – þannig að fylgist með

Varðandi skálann og salerni að þá hefur almennri afgreiðslu og veitingasölunni verið lokað eins og fram hefur komið.  Við munum opna inn á salernin í skálanum þegar við sjáum fram á að það séu „margar“ rástímabókanir og þannig regluleg umferð í kringum skálann.  Í ljósi þess að óboðnir gestir hafa verið að koma inn í mannlausan skálann að þá munum við engu að síður þurfa að takmarka það við umferð.  Salernið við 5. teiginn er alltaf opið og verður þar til annað verður tilkynnt.

Í næstu viku verður hafist handa við að blása allt vatn úr bæði vökvunarkerfinu og öðrum vatnsleiðslum fyrir veturinn svo það frysti ekki í þeim.  Boltavélin verður þar af leiðandi opin fram til sunnudagsins 11. október sem verður síðasti dagurinn.  Eftir það er öllum velkomið að nota eigin bolta á æfingasvæðinu.

Njótið haustgolfsins – lögum boltaför á flötum og setjum torfusneplana í förin,

Kveðja,
Haukur