Golfskálinn og veitingasalan lokar eftir daginn í dag

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Nú er golftímabilið formlega á enda úti á golvelli.  Golfskálinn og veitingasalan lokar eftir daginn í dag og því síðasti séns til þess að til þess að annaðhvort nýta inneignina sína í veitingasölunni eða að gera upp skuld sína við veitingasöluna ef eitthvað stendur útaf.

Völlurinn sjálfur verður opinn fyrir félagsmenn á meðan veðurastæður leyfa og munum við tilkynna það nánar þegar hann verður settur í vetrarbúning.  Það á ekki að þurfa að ítreka það (en við gerum það samt) að gera við boltaför á flötum.  Öll boltaför sem ekki er gert við strax á þessum árstíma munu bera þess merki næsta vor og inn í sumarið.

Boltavélin – verður opin í nokkra daga í viðbót, það verður tilkynnt hér á síðunni þegar hún lokar.

Á næstu dögum verður svo byrjað að taka á móti pöntunum fyrir fasta tíma í golfhermana á Nesvöllum í vetur, það verður auglýst bæði með frétt á heimasíðunni og tölvupósti – við hvetjum alla til að nýta sér þá aðstöðu og geta áhugasamir sent fyrirspurnir á nesvellir@nkgolf.is

Nefndirnar