Á Öldungamótaröð LEK (Landssamtök eldri kylfinga) keppa kylfingar um sæti í landsliði Íslands. Árangur Nesklúbbsfélaga í fyrra var það góður að nú í sumar keppa sjö þeirra í landsliðum LEK. Í kvennaflokki keppir Elsa Nielsen í landsliði 50+ og Þyrí Valdimarsdóttir í landsliði 65+. Kvenna landsliðin eru valin án forgjafar. Evrópukeppni kvenna fer fram í Svíþjóð í næstu viku.
Í liði 55+ karla án forgjafar keppir Hinrik Þráinsson og þeir Aðalsteinn Jónsson og Gunnar Gíslason í liði 55+ með forgjöf. Karlarnir keppa á Ítalíu í júlí. Í liði karla 65+ án forgjafar eru þeir Gauti Grétarsson og Eggert Eggertsson sem fara til Finnlands í lok mánaðarins.

