Rástímaskráningar og staðfesting á rástíma – skyldulesning

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Af gefnu tilefni viljum við enn og aftur fara yfir þær reglur sem settar hafa verið fram hvað varðar skráningu á rástíma og staðfestingu á rástíma.  Heilt yfir stöndum við okkur mjög vel en það eru því miður of mörg tilvik þar sem klárlega þarf og er hægt að gera betur.

Það er á ábyrgð hvers og eins að kynna sér þær reglur sem settar eru fram af hálfu klúbbsins og farið er eftir.  Þær má allar sjá með því að „smella hér

Fyrir aukaaðild að þá má sjá reglurnar sem gilda með því að „smella hér„.  Munið að afsláttargjaldið/kóðinn í GolfNext á eingöngu við þegar bókað er í gegnum Golfbox innan þess tímaramma sem gefinn er.  Annars þarf að greiða fullt vallargjald og á það jafnt við þegar bókað er í veitingasölu eða skrifstofu.

ATHUGIÐ: ALLIR AÐRIR RÁSTÍMAR SEM BÓKAÐIR ERU OG FALLA EKKI INNAN ÞEIRRA TÍMARAMMA SEM GEFNIR ERU ÞARF AÐ GREIÐA FORBÓKUNARGJALD SKV. GJALDSKRÁ OG ER KR: 1.000.-
Dæmi:

  • Ég sem félagi í fullri aðild ætla að bóka vin sem er ekki í NK eftir tvo daga eða meira = fullt vallargjald + kr. 1.000 í forbókunargjald
  • Ég sem félagi í aukaaðild ætla að bóka mig eftir þrjá daga = fullt vallargjald + kr. 1.000 í forbókunargjald
  • Ég er í fullri aðild og ætla að bóka vin sem er í aukaaðild eftir tvo daga = fullt vallargjald fyrir frænkuna + 1.000 kr. í forbókunargjald
  • Ég í fullri aðild bóka vin í fullri aðild og er gert vísvitandi til þess að eingöngu halda rástímanum og skipta svo um nafn rétt fyrir tímann er bannað.  Munum að lágmarkstíminn til þess að afbóka rástíma er tvær klukkustundir.  Hafa skal í huga að auðvitað geta hér komið upp undantekningartilvik en ef það er leikið eftir reglulega verður viðkomandi áminntur.

Vinir á ferð (sjá hér) á eingöngu við félaga sem eru í fullri aðild.  Vinagjaldið á eingöngu við ef það er bókað skv. reglum um gesti.  Það er að segja, hægt er að bóka samdægurs eða kl. 20.00 í kvöld get ég bókað á morgun.  Allt annað er fullt vallargjald + kr. 1.000 í forbókunargjald.

Vinsamlegast ekki biðja starfsfólk á skrifstofu eða veitingasölu um annað.

Hvað staðfestingu á rástímum varðar að þá er eingöngu verið að verja hagsmuni ykkar félagsmanna.  Það á enginn ekki að þurfa eða ekki getað staðfest sig á rástíma.  Sé rástími ekki staðfestur telst það þannig að viðkomandi kylfingur hafi ekki mætt í tímann sinn, og geta viðurlög samkvæmt reglum félagsins átt við. Ef þið eruð ekki með símann með ykkur – talið við starfsfólk á skrifstofu eða veitingasölu.  Ef af einhverjum öðrum orsökum þú getur ekki og munt ekki geta staðfest þig á rástíma, hafðu samband við framkvæmdastjóra.

Viðurlögin við að mæta ekki á rástímann sinn eru eftirfarandi:

  1. skipti – áminning
  2. skipti – viðvörun
  3. skipti – lokað fyrir rástímaskráningu í 7 daga
  4. ítrekuð brot fara fyrir aganefnd

Það vill enginn þurfa að beita þessum viðurlögum en það nú er einfaldlega nauðsynlegt að við tökum höndum saman, virðum reglurnar og förum eftir þeim – það er þinn hagur.