Á morgun, fimmtudaginn 19. júlí fer fram síðasta fimmtudagsmótið í sumar. Fimmtudagsmótin eru innanfélagsmót en félagsmönnum gefst eins og áður kostur á að taka með sér félaga sem greiða eingöngu mótsgjald. Eingöngu félagsmenn geta þó unnið til verðlauna í mótinu. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og besta skor.
Samhliða fimmtudagsmótinu fer fram síðasta mótið á öldungamótaröðinni. Þetta verður sjöunda mótið og munu fimm bestu mótin telja hjá hverjum kylfingi.
Þátttökugjald:
Fimmtudagsmót: kr. 2.000
Öldungamótaröð: kr. 500
Fimmtudagsmót og öldungamótaröð: 2.000