Staðfesting á rástíma

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Eins og fram kom í síðasa formannspistli ætlum við að taka höndum saman og fara að bera meiri virðingu fyrir rástímum á vellinum.  Það felur meðal annars í sér að staðfesta okkur á rástíma.  Einfaldast er að gera það með því að fara inn í appið og bera símann upp að QR-kóðanum sem blasir við á skjánum sem staðsettur er inni í skála.  Nánar tiltekið í holinu fyrir framan skrifstofuna.  Til þess að virkja appið þitt þarftu að:
1. fara inn í appið
2. Smella á Forsíðan mín
3. Velja þar Stafrænt kort
4. Þá poppar upp gluggi sem spyr hvort að þú heimilir að nota myndavélina – þar þarf að smella á „allow“
5, Þá ætti að koma á símann þinn „skannaðu QR-kóða“ og þú berð símann upp að skjánum í skálanum til að staðfesta rástímann

Hægt er að staðfesta rástíma með allt að 60 mínútna fyrirvara og í síðasta lagi einni mínútu fyrir tímann.  Við munum nýta maí mánuð í að læra á þetta gera þetta að venju okkar.  Í júní taka svo við almennar reglur um rástímanotkun á Nesvellinum sem sjá má á heimasíðunni, eða með því að smella hér.