Styrktarmót fyrir Óla Lofts í dag

Nesklúbburinn

Styrktarmót fyrir Ólaf Björn Loftsson atvinnukylfing úr Nesklúbbnum verður haldið í dag, miðvikudaginn, 3. júlí.

Ólafur stefnir að því að taka þátt í úrtökumótum fyrir evrópsku og bandarísku mótaraðirnar í golfi í haust. Hann hefur æft stíft á síðustu mánuðum, unnið vel að sínum leik og er fullur sjálfstrausts fyrir komandi verkefni. Markmið hans er að vera í sínu allra besta formi þegar úrtökumótin hefjast og öðlast þátttökurétt meðal bestu kylfinga heims.

Mótið mun hefjast klukkan 08:00 og verður ræst út til klukkan 20:00. Ekki eru bókaðir rástímar heldur er boltarennan í gildi á fyrsta teig.

Leiknar verða 9 holur og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu sætin í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun ásamt því að dregið verður úr skorkortum.

Verðlaunaafhending er áætluð um klukkan 22:30.

Verð á hverjar 9 holur er 3.000.-kr. en þátttakendum er frjálst að leika fleiri hringi og telur þá besti hringurinn.