Í gær óskuðum við eftir aðstoð félagsmanna við að hreinsa völlinn af miklu grjóti sem barst inn á hann í veðurofsanum. Það stóð ekki á svörum frekar en fyrri daginn þegar óskað er eftir aðstoð frá okkar félagsmönnum í sjálfboðaliðastörf. Í morgun mættu á þriðja tug félagsmanna, létu hendur standa fram úr ermum og kláruðu verkið. Við þurfum því ekki á frekari hjálp að halda seinnipartinn í dag eins og auglýst var. Takk innilega þið sem mættuð og gáfuð ykkur ykkur tíma til að vinna verk sem annars hefði tekið starfsmenn marga daga – þetta er ómetanlegt.
Vallarnefnd