Úrslit í púttmóti dagsins

Nesklúbburinn Almennt

Áttunda púttmótið í púttmótaröð klúbbsins for fram í dag og mættu tæplega 30 manns til leiks.  Sigurvegari dagsins var Rúnar Geir Gunnarsson sem lék á 10 höggum undir pari eða 26 höggum.  Gunnlaugur Jóhannsson var í öðru sæti á 28 höggum og jafnir í 3-4 sæti voru þeir Einar „blikki“ Jóhannsson og Valur Guðnason á 29 höggum.  Báðir voru þeir með jafn mörg einpútt, jafnar seinni níu og jafnar síðustu sex holurnar.  Þurfti því að fara í síðustu þrjár holurnar sem Einar einpúttaði allar á meðan Valur einpúttaði tvær af síðustu þremur.  Einar reiknast því í þriðja sæti og vann sér þar með rétt til þátttöku í lokamótinu.  Stigagjöf dagsins var annars eftirfarandi:

12 stig – Rúnar Geir Gunnarsson

10 stig – Gunnlaugur Jóhannsson

8 stig – Einar Ingvar Jóhannsson

7 stig – Valur Guðnason

6 stig – Grímheiður Freyja Jóhannsdóttir

5 stig – Guðmundur Örn Árnason

4 stig – Haukur Óskarsson

3 stig – Einar M. Einarsson

2 stig – Ágúst Þorsteinsson

1 stig – Gunnar Halldórsson

Sökum fjölda þátttakenda sem fengið hafa stig verður hér eftir bara birt nöfn 10 efstu keppenda eftir hverja helgi.  Staða 10 efstu eftir áttunda mótið er eftirfarandi:

1. sæti – Guðmundur Örn Árnason – 60,5 stig

2. sæti – Valur Guðnason – 59,5 stig

3. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 52 stig

4. sæti – Dagur Jónasson – 41,5 stig

5. sæti – Ágúst Þorsteinsson – 39 stig

6. sæti – Arnar Friðriksson – 29,5 stig

7. sæti – Haukur Óskarsson – 25,5 stig

8. sæti – Gunnlaugur Jóhannsson – 20 stig

9. sæti – Einar M. Einarsson – 15 stig

10 sæti – Örn Baldursson – 15 stig