Síðasta púttmót vetrarins fór fram í Laugardalshöllinni í dag. Sigurvegari dagsins var Þórarinn Gunnar Birgisson en hann lék á nýju staðarmeti eða 24 höggum. Í öðru sæti var Haukur Óskarsson á 25 höggum og í þriðja sæti Guðmundur Örn Árnason einnig á 25 höggum. Í heildarkeppninni náði Valur Guðnason að komast upp fyrir Dag Jónasson og í fyrsta sætið en Valur endaði í 4. – 5. sæti í keppni dagsins. Stigagjöf dagsins var annars eftirfarandi:
12 stig – Þórarinn Gunnar Birgisson
10 stig – Haukur Óskarsson
8 stig – Guðmundur Örn Árnason
6,5 stig – Árni Guðmundsson
6,5 stig – Valur Guðnason
5 stig – Nökkvi Gunnarsson
4 stig – Ágúst Þorsteinsson
3 stig – Kjartan Steinsson
2 stig – Gunnar Halldórsson
1 stig – Áslaug Einarsdóttir
Í Heildarkeppninni er lokastaðan því eftirfarandi:
1. sæti – Valur Guðnason – 94,5 stig
2. sæti – Dagur Jónasson – 93,5 stig
3. sæti – Guðmundur Örn Árnason – 89,5 stig
4. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 67 stig
5. sæti – Ágúst Þorsteinsson – 58 stig
6. sæti – Haukur Óskarsson – 56,5 stig
7. sæti – Arnar Friðriksson – 36 stig
8. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson – 29 stig
9. sæti – Steinn Baugur Gunnarsson – 24,5 stig
10. sæti – Gunnlaugur Jóhannsson – 23 stig
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.