Úrslit úr fyrsta púttmótinu

Nesklúbburinn Almennt

Eins og áður hefur komið fram stendur Nesklúbburinn fyrir púttmótum í vetur.  Mótin eru haldin í Laugardalshöllinni alla sunnudaga í vetur á milli kl. 11.00 og 13.00.  Í dag var fyrsta mótið haldið og mættu 26 félagar til leiks.  Sigurvegari dagsins var Guðmundur Örn Árnason sem lék á 30 höggum.  Samkvæmt reglugerð mótsins ef leikmenn eru jafnir er það fjöldi einpútta sem telur fyrst, þ.e. sá er hefur fleiri einpútt er ofar.  Ef einpúttin eru jafn mörg skal farið í skor seinni níu.  Ef það er einnig jafnt er talið út frá síðustu 6 holum, svo síðustu 3 holum og svo síðustu holu.  Ef allt er ennþá jafnt skal verpa hlutkesti.  Baldur Þór Gunnarsson lék einnig á 30 höggum í dag og báðir höfðu þeir Guðmundur og Baldur jafn mörg einpútt.  Guðmundur lék aftur á mót seinni níu holurnar á þremur höggum undir pari á meðan Baldur lék á 2 höggum undir pari sigraði Guðmundur mótið þar af leiðandi.  Hlýtur Guðmundur að verðlaunum 10 körfu boltakort á æfingasvæði klúbbsins í sumar.  Í heldarstigagjöfinni hlutu eftirfarandi stig:

Guðmundur Örn Árnason – 12 stig

Baldur Þór Gunnarsson – 10 stig

Haukur Óskarsson – 8 stig

Arnar Friðriksson – 7 stig

Valur Guðnason – 5,5 stig

Ágúst Þorsteinsson – 5,5 stig

Árni Guðmundsson – 4 stig

Grímheiður Jóhannsdóttir – 3 stig

Gunnar Geir Baldursson – 2 stig

Ólafur Benediktsston – 1 stig

Allir félagar Nesklúbbsins eru hvattir til þess að mæta næstkomandi sunnudaga og njóta félagsskapar góðra vina.  ATH. ekki er skylda að taka þátt í mótunum..