Kæru félagar.
Frá og með sumardeginum fyrsta og þar til golfvöllurinn opnar verðum við með sérstakt tilboð í golfhermana á Nesvöllum. Hverjar 30 mínútur í hermi verða á aðeins 1.500 kr., hvenær sem er á opnunartíma.
Við hvetjum félagsmenn til að kíkja í hermi á næstu dögum og koma sér í gang fyrir sumarið.
Tímabókanir fara fram á boka.nkgolf.is eða í síma 561-1910.

