Gleðilegt golfsumar

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Gleðilegt sumar kæru félagar,

Sumargjöfin í ár er langþráð uppfærsla á Golfbox appinu sem héðan í frá heitir „Mitt golf“.  Við mælum með að allir félagsmenn hlaði niður appinu sem er aðgengilegt í bæði „app store“ og „play store“.

Allar þær aðgerðir sem við erum vön að nota verða áfram aðgengilegar í Mitt Golf. Hægt er að smella „GolfBox“ í valmynd og þá eru notendur komnir í flestar aðgerðir sem þau þekkja sem dæmi skorskráningu eða að staðfesta sem ritari.

Nánari upplýsingar má sjá á vef Golfsambands Íslands, golf.is – eða með því að smella hér:

Annars er það að frétta af vellinum að reynt var að byrja að valta hann í gær.  Það er gert á hverju ári til að jafna út eins og hægt er þær frostlyftingar sem verða til yfir veturinn.  Það tókst nú ekki betur en svo að valtarinn skildi strax eftir sig nokkuð djúp sár sem þýðir einfaldlega að hann er ennþá ofsalega blautur og þarf meiri tíma til að þorna.  Það er því orðið ansi hæpið að völlurinn verði opnaður 2. maí eins og til stóð en endanleg ákvörðun mun liggja fyrir um eða eftir helgi.

Við ætlum að reyna að opna æfingasvæðið strax eftir helgi.  Eins fram kom fyrr í vikunni höfum við verið að bíða eftir varahlut í boltavélina sem hefur því miður tekið töluvert lengri tíma en okkur var upphaflega lofað.  Við munum opna um leið og mögulegt er.

Allar fréttir verða eins og áður birtar heimasíðunni og einhverjar þeirra sendar út á póstlistann.  Nú og svo munum við að sjálfsögðu notast að einhverju leiti „Mitt golf“ appið þar sem nú er mögulegt að koma skilaboðum áleiðis þar í gegn.

Með golfkveðju,
Haukur