Hello members, I hope you’ve all been enjoying the glorious weather we’ve had over the past few weeks. It’s certainly been a pleasure for the staff and me to be out working in the sun. That said, week 23 told a different story — with winds reaching 26m out on the course, the greens took a bit of a hit. …
Tvö laus pláss í hjóna- og parakeppnina á morgun
Vegna forfalla er laust fyrir tvö pör í NTC hjóna- og parakeppnina á morgun. Það er geggjuð veðurspá og um að gera að taka þátt í þessu stórskemmtilega móti. Nánari upplýsingar og skráning í mótið má sjá á golfbox eða með því að smella hér. Skráningarfrestur til kl. 18.00 í dag. Ath. það þarf að skrá báða einstaklinga inn í mótið …
Gleði á golfhátíð á Akranesi
Dagana 10.–11. júní tóku ellefu krakkar úr Nesklúbbnum þátt í skemmtilegri golfhátíð á Akranesi fyrir 11–14 ára kylfinga. Um 80 þátttakendur úr 10 golfklúbbum komu saman og nutu fjölbreyttrar dagskrár sem íslenskir landsliðs- og atvinnukylfingar stýrðu. Á dagskránni voru fjölbreyttir golftengdir leikir og þrautir, en einnig var boðið upp á spurningakeppni, sundferð og gistingu í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hátíðin heppnaðist einstaklega …
Kríuvarp og gönguleiðin á milli 8. og 9. braut
Kæru félagar, Af gefnu tilefni viljum við taka fram að nú hafa kríurnar okkar orpið og því er afar mikilvægt hafa í huga að það er stranglega bannað að fara inn í kríuvarpið á 9. braut og fyrir aftan flötina á 6. flöt til að sækja boltann. Það eru fallreitir við bæði kríuvörpin þar sem við látum nýjan bolta falla …
NTC hjóna- og paramótið er á laugardaginn – skráning í gangi
Hið glæsilega og stórskemmtilega NTC hjóna- og paramót verður haldin á laugardaginn. Það verður öllu tjaldað til í þessu veglega móti, skráning er hafin á golf.is og því um að gera að skrá sig sem fyrst. Nánari upplýsingar og skráning í mótið má sjá á golfbox eða með því að smella hér. Skráningu lýkur á föstudaginn kl. 11.00. Ath. það …
Fleiri rástímar, reglur og viðurlög – þetta þarftu að lesa….
Kæru félagar, Nú er búið að bæta við rástímum á milli kl. 06.00 og 07.00 á morgnanna. Rástímar á þessum tíma eru eingöngu fyrir tveggja manna holl og eru 8 mínútur á milli rástímanna. Hér eftir er því nauðsynlegt að bóka sig á rástíma á þessum tímum. ATH: að þeir sem mæta án þess að skrá sig á rástíma er …
Góð þátttaka og árangur Neskrakka í Nettó mótinu
Þriðja mót Unglingamótaraðarinnar og annað mót Golf 14 fóru fram um helgina hjá GKG og átti Nesklúbburinn 14 þátttakendur í mótunum. Júlí Róbert Helgason og Felix Leó Helgason lentu í 2. og 3. sæti í flokki 12 ára og yngri drengja, sem spiluðu 9 holur á Mýrinni, og Elísabet Þóra Ólafsdóttir endaði í 3. sæti í flokki 14 ára og …
OPNA NESSKIP ÚRSLIT
OPNA NESSKIP mótið fór fram á Nesvellinum í gær. Mótið var 18 holur þar sem leikið var eftir höggleiks- og punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig voru veitt nándarverðlaun á par 3 holum. Allur ágóði af mótinu rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Helstu úrslit í mótinu …
Einnarkylfukeppni NK kvenna á þriðjudaginn
Kæru kríur, Einnarkylfukeppni NK kvenna verður haldin núna á þriðjudaginn, 10. júní. Leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt innanfélagsmót fyrir allar konur með aðild í Nesklúbbnum. Mæting er kl.17:00. Ræst verður út á öllum teigum kl.17:50 og spilaðar 9 holur. Athugið, hámarksfjöldi í mótinu eru 63 konur – skráning er hafin og það eru nokkur sæti …
OPNA NESSKIP ER Á LAUGARDAGINN
laugardaginn 7. júní, verður OPNA NESSKIP haldið á Nesvellinum. OPNA NESSKIP er 18 holu mót þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Leikið verður eftir bæði punkta og höggleiks fyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Mótið er …







