OPNA NESSKIP – skráning hafin

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Mánudaginn 6. júní, verður haldið opið 18 holu mót á Nesvellinum þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Mótið er haldið í samstarfi við NESSKIP. Leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Mótið er opið öllum kylfingum. …

Frábær þátttaka á Áskorendamótaröðinni í dag

Nesklúbburinn Almennt

Fyrsta mótið á Áskorendamótaröð GSÍ var haldið á Nesvellinum í dag.  Mótið sem er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir unga kylfinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í mótaþátttöku heppnaðist afar vel við glimrandi góðar aðstæður.  Leikið var í 4 aldursflokkum fyrir bæði kyn og voru 62 kylfingar skráðir til leiks úr 8 golfklúbbum, þar af voru flest börnin …

ECCO holukeppnirnar halda áfram á morgun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Eins og fram hefur komið eru nú bæði ECCO bikarkeppnin og Klúbbmeistari í holukeppni leikið eftir nýju fyrirkomulagi.  Þannig eru nú allir leikirnir í útsláttarkeppnunum leiknir á fyrirfram ákveðnum dögum.  þetta hefur mælst vel fyrir hjá þátttakendum og skapar bæði meiri stemningu og allir vita hvenær þeir eiga næsta leik. Nú er fyrstu umferðunum lokið í báðum keppnum.  Leikar munu …

Holukeppni NK kvenna – skráningu lýkur á morgun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar konur

Kæru NK konur Nú lýkur skráningu í nýja viðburðinn okkar í sumar – holukeppni NK kvenna.   það eru nokkur sæti laus og hvetjum við þær sem ekki eru skráðar að gera það, því þetta er til gamans gert og við lærum allar helling á þessu. Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um mótið – svo skráið þið ykkur á golf.is …

Formannspistill

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar, Efni þessa pistils snýst að þessu sinni meira og minna um völlinn okkar. Ég vil byrja á því að þakka fyrir mikinn áhuga og góðar umræður á kynningarfundinum vegna breytinganna á vellinum sem haldinn var um daginn. Þeir sem misstu af kynningunni geta horft á hana í gegnum facebook síðu klúbbsins eða með því að smella hér.  Hún …

Úrslit í ECCO mótinu í dag

Nesklúbburinn Almennt

ECCO mótið fór fram á Nesvellinum í dag.  Það voru 104 þátttakendur skráðir til leiks og komust færri að en vildu.  Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi: Höggleikur: 1. sæti: Kjartan Óskar Guðmundsson  – 71 högg 2. sæti: Heiðar Steinn Gíslason – 72 högg 3. sæti: Gauti Grétarsson – 73 högg Punktakeppni: 1. sæti:  Benedikt Blöndal Sveinsson – 52 punktar 2. …

Holukeppni NK kvenna – frábær viðbót við kvennastarfið

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar konur

Kæru NK konur Í sumar ætlum við að bæta í kvennastarfið og bjóða upp á holukeppni NK kvenna.  Flestar erum við vanar að spila alltaf eftir punktafyrirkomulagi eða höggleik.  Okkur finnst tilvalið að gera starfið fjölbreyttara og um leið vonandi skemmtilgegra með þessari viðbót.  Við viljum þannig kynna fyrir þeim sem ekki þekkja þetta skemmtilega fyrirkomulag og má til gamans …

Lómur er orpinn við Daltjörn

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Eins og allir vita er fuglalíf afar blómlegt á og við Nesvöllinn.  Margæsin sem heimsækir okkur á leið sinni frá Írlandi til Kanada kom óvenju snemma þetta árið, eða fyrir miðjan apríl.  Það verður fróðlegt að sjá hvort það muni hafa áhrif á brottfarartíma hennar sem er öllu jafna 25.-27. maí.  Krían, okkar aðalsmerki, kom í síðustu viku og fer …

Úrslit í Byko mótinu

Nesklúbburinn Almennt

Það var góð þátttaka í Byko mótinu í gær og aðstæður góðar þó vissulega hefði hitastigið mátt vera aðeins hærra.   Leikið var eftir punktafyrirkomulagi, og þá voru líka veitt verðlaun fyrir besta skor og nándarverðlaun.  Helstu úrslit í mótinu urðu eftirfarandi: Punktakeppni: 1. sæti: Birgir Örn Arnarsson – 24 punktar 2. sæti: Pétur Orri Þórðarson – 23 punktar 3. sæti: …

Skráning hafin í ECCO bikarkeppnina

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Forkeppnin í ECCO bikarkeppnina fer fram laugardaginn 14. maí.  Mótið er eins og venjulega „sjálfsstætt“ mót eins og kemur fram í lýsingunni á Golfbox þar sem veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og punktakeppni.   Skráning og allar nánari upplýsingar má sjá á Golfbox eða með því að smella hér. Mótanefnd