Golfmót og getraunakaffi á laugardaginn

Nesklúbburinn Unglingastarf

Á laugardaginn verður haldið innanfélagsmót til styrktar ferðasjóðs unglinga.  Leiknar verða 9 holur og leikfyrirkomulagið punktakeppni með fullri forgjöf.  Vetrarreglur verða í gildi, þ.e. boltinn færður út í kargann eða tíað upp á brautum og leikið verður inn á vetrarflatir.  Hægt er að mæta og byrja að spila á milli kl. 11.00 og 14.00.  Þátttökugjald kr. 1.000 og verða veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.

Á milli kl. 11.00 og 13.00 er svo hið vikulega getraunakaffi úti í golfskála.  Heitt á könnunni og nýbakaðar pönnukökur og rennur allur ágóði til styrktar ferðasjóðs unglinga.

Síðastliðinn sunnudag buðu unglingarnir upp á bílabón og rann ágóðinn af því til ferðasjóðsins.  Unglingarnir vilja þakka þeim fjölmörgu sem mættu með bíla sína, keyrðu í burtu á tandurhreinum bílum með bros á vör og styrktu um leið gott málefni.

Unglinganefnd