Skráning hófst í dag á krakka- og unglinganámskeiðin sem haldin verða í sumar. Markmiðið með námskeiðunum er að kenna undirstöðuatriðin í golfleik, helstu golfreglur, framkomu og umgengni á golfvelli.
Yfirumsjón með námskeiðunum verður í höndum Nökkva Gunnarssonar golfkennara.
Námskeið 1. 06. – 10. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 2. 14. – 16. júní kl. 09.00 – 12.00 (3 daga námskeið. kr. 5.400)
Námskeið 3. 20. – 24. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 4. stúlknanámskeið 27. júní – 01. júlí kl. 09.00 – 12.00
Aldurstakmark er 8 ár og verð pr. námskeið kr. 9.000
Skráning í síma: 561-1930