Unglingar NK að keppa um helgina

Nesklúbburinn Unglingastarf

Um helgina fer fram fyrsta stigamótið í Arionbanka mótaröð unglinga og fer mótið fram á Strandarvelli á Hellu.  Mótin á mótaröðinni verða í heildina sex talsins í sumar og telja öll til stiga á stigalistanum.  Keppt verður í sex flokkum, skipt upp eftir aldri og kyni.  Á sama tíma fer fram fyrsta mótið á áskorendamótaröð unglinga en það mót fer fram í Mýrinni hjá GKG.  Áskorendamótaröðin er fyrir þá krakka og unglinga sem ekki komast inn á mótaröð unglinga og eiga því kost á því að taka þátt í 18 holu forgjafarmóti sem haldið verður á laugardögum á sama tíma og stigamót unglinga.  Krakkar og unglingar úr Nesklúbbnum munu keppa á báðum þessum mótum.  Á Hellu verða fjórir keppendur sem keppa í þremur flokkum og á Áskorendamótaröðina fara fimm krakkar sem munu keppa í tveimur flokkum.  Hægt verður að fylgjast með gengi þeirra og annarra golf.is.