Forgjöf – upplýsingar

Á árinu 2020 sameinuðust sex forgjafarkerfi í eitt fyrir allan heiminn. Nýju reglurnar gera kylfingum fært að nota sína forgjöf á hvaða golfvelli sem er í heiminum og keppa eða leika golfhring sér til skemmtunar með hverjum sem er á heiðarlegum og jöfnum forsendum.Reglurnar kallast á ensku World Handicap System (WHS) og tóku gildi hér á landi 1. mars 2020.

Helstu grunnatriðin í forgjafarreglunum

Meðaltalsregla. Forgjöfin þín verður meðaltal 8 lægstu skormismuna síðustu 20 forgjafarhringja.

Forgjafarflokkar eru liðin tíð. Í nýju reglunum eru engir forgjafarflokkar eins og kylfingar eru vanir. Sem þýðir líka að nú geta allir skráð inn forgjafarhringi eftir 9 holu leik eða meira.

Ekki þarf að tilkynna fyrirfram. Ekki þarf að tilkynna sérstaklega í tölvukerfinu að leikinn hringur gildi til forgjafarútreiknings. Hægt verður að skrá alla hringi eftirá til forgjafarútreiknings.

Viðurkennd leikform. Skor er gilt til forgjafarútreiknings ef hringur hefur verið leikinn samkvæmt golfreglum og viðurkenndum leikformum.

Hámarks forgjöf 54. Óbreytt verður að hámarks forgjöf sem kylfingur getur fengið er 54.0.

Þú þarft ekki að missa þig í smáatriðin!
Forgjafarreglurnar eru frábrugðnar golfreglum að því leyti að þeim er að mestu leyti stjórnað af tölvukerfi. Þess vegna þarftu ekki að læra smáatriðin heldur treysta þeim reiknireglum í tölvukerfinu sem reikna út þína forgjöf.

Þú þarft bara …

…að leika þér í golfi. Þú sérð vallarforgjöf þína á forgjafartölflu fyrir viðkomandi völl og teig. Leiktu samkvæmt gildandi golfreglum og gerðu þitt besta á vellinum. Skráðu svo skorið í tölvukerfi GSÍ eða önnur snjallforrit sem tengjast tölvukerfinu.

Spurt og svarað

Hægt er að sjá frekari fróðleik og svör við algengum spurningum á vef Golfsambands Íslands eða með því að smella hér