Í Úrval-Útsýn mótinu sem nú er haldið á Nesvellinum fór kylfingur holu í höggi í morgun. Þar var að verki Baldvin Kristján Baldvinsson úr golfklúbbnum Oddi. Kristján notaði 8 járn við höggið og var þetta í fyrsta skipti sem hann fer holu í höggi. Nesklúbburinn óskar Kristjáni innilega til hamingju með afrekið.