Það styttist í sumarið

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild, Póstlistar karlar, Póstlistar konur

Kæru félagar,

Nú þegar rauðar hitatölur eru í veðurkortunum, gulum lægðum fækkar og krían er komin, þýðir það bara eitt – þetta er að bresta á og framundan er geggjað golfsumar.  Til þess að upplýsa ykkur aðeins um stöðuna að þá er hún eftirfarandi:

Völlurinn: Það er ennþá frost í jörðu sumsstaðar á vellinum.  Völlurinn er á köflum svakalega blautur og mun þurfa dágóðan tíma til að jafna sig.  Sumstaðar er það þannig að það getur einfaldlega verið hættulegt að stíga niður fæti þar sem frostlyftingar voru miklar og undirlagið er því mjög mjúkt.  Þannig að fyrir ykkur sem eruð búin að taka kylfurnar út og hafið hug á að rölta nokkrar holur – farið varlega og umfram allt, alls ekki slá á brautunum og inn á flatirnar.  Öll för, bæði boltaför og kylfuför munu á þessum tímapunkti skilja eftir sig sár sem munu ekki jafna sig fyrr en seint í sumar.  Völlurinn er eingöngu opinn fyrir félagsmenn.

Því miður hefur töluvert af grjóti og möl borist inn á völlinn í verstu veðurofsunum í vetur.  Blessunarlega þó ekkert í líkindum við það sem var í fyrra, en þó er það því miður töluvert.  Fyrst og fremst er það grjót úr göngustígnum sem hefur skolað niður og er göngustígurinn sjálfur þ.a.l. ansi illa farinn á köflum.  Þessa dagana er verið að styrkja stíginn, bæði að sunnan- og vestanverðu.  Það hefur nú þegar í tvígang sýnt gildi sitt og bjargað því sem bjargað var.  Miklar vonir eru bundnar við að þessar aðgerðir munu verja stíginn að mestu, en eflaust mun nú alltaf eitthvað grjót berast inn á Suðurnesið á meðan sjóvarnargarðurinn er ekki hækkaður.

Æfingasvæðið:  Það er ennþá þannig að það er ekki hægt að týna boltana sökum bleytu.  Einnig er beðið eftir varahlut í boltavélina sem því miður hefur tekið lengri tíma í framleiðslu en lofað hafði verið og ekki liggur alveg ljóst fyrir á þessari stundu hvenær hann mun berast.  Við munum opna æfingasvæðið við fyrsta mögulega tækifæri og þá að sjálfsögðu auglýsa það hér á síðunni.  Motturnar eru engu að síður á sínum stað og er öllum velkomið að nota þar eigin bolta.

Þannig að – Þar til annað kemur í ljós stefnum við á að halda hreinsunardaginn, og þannig opna völlinn og tímabilið formlega, laugardaginn 2. maí.  Það gæti þó breyst og ef svo fer verður það tilkynnt á hér á heimasíðunni og með tölvupósti.

Að lokum minnum við á að inniaðstaðan okkar á Nesvöllum er ennþá opin og verður opin allt þar til við opnum úti á velli.

Með golfkveðju,
Stjórnin