Hreinsunardagurinn á laugardaginn – það vantar fleiri hendur

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild, Póstlistar karlar, Póstlistar konur

Kæru félagar,

Hinn árlegi hreinsunardagur Nesklúbbsins verður núna á laugardaginn, 9. maí.  Til þess að geta opnað völlinn að þá þarf að ráðast í fjölmörg verkefni.  Ef ekki næst að klára þau á laugardaginn verðum við að bíða með að opna völlinn þar til þau verkefni klárast.

Skráningin gengur ágætlega en betur má ef duga skal.  Við biðjum þig því kæri félagi, að ef þú hefur tök á að koma á milli kl. 10.00 og 12.00 á laugardaginn og leggja okkur lið að þá væri það afar vel þegið.

Það er mikilvægt að skrá sig í gegnum Golfbox svo við getum forgangsraðað í þau verkefni sem mest liggur á.  Þú getur skráð þig þar með því að smella hér.

Einnig geturðu skráð þig með því að senda tölvupóst á nkgolf@nkgolf.is og tiltekið nafn og kt.

Með von um góðar undirtektir,

Vallarnefnd