Áttu skemmtilega mynd í ársskýrsluna

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Nú stendur yfir undirbúningur fyrir aðalfund sem verður haldinn þann 28. nóvember næstkomandi og þar með vinna við ársskýrslu og -reikninga félagsins.  Í skýrslunni höfum við alltaf verið dugleg við að myndsskreyta hana með myndum af starfi liðins sumars.

Nú langar okkur að koma með þá nýjung að leita til ykkar félagsmanna, hvort þið eigið flotta og/eða skemmtilega mynd sem þið tókuð úti á golfvelli í sumar.  Þið getið sent inn mynd fram til hádegi á föstudaginn á netfangið nkgolf@nkgolf.is og þá veitið þið okkur um leið heimild til þess að birta myndina í skýrslunni.

Ef undirtektir verða góðar sem við vonumst eftir að þá verðum við að velja og hafna en reynum að koma sem flestum að.  Þessi mynd sem fylgir þessari frétt hefur t.d. hlotið nafnið „móðir og barn“ og er tekin af Guðmundi Kr. Jóhannessyni félagsmanni.

Með golfkveðju,

Ársskýrslu nefndin