Bændaglíman á laugardaginn – kveðjum sumarið saman

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Þá er það mótið sem allir hafa beðið eftir.  Bændaglíma Nesklúbbsins 2022 verður haldin laugardaginn 24. september.  Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt lokamót hvers sumars.  Því eru félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja þetta frábæra golftímabil með stæl.

Bændur í ár verða þeir Þór Sigurgeirsson Bæjarstjóri og Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og því ljóst að þetta verður ekkert nema bara gaman.

Dagskrá:

Mæting kl. 12.00

Þá verða bændur búnir að skipta þátttakendum í tvö lið með aðstoð mótsstjórnar.  Fjórir verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas-scramble holukeppni með forgjöf.

12.45 – liðin tilkynnt og bændur munu bjóða upp á létta hressingu og hvetja sín lið til dáða.

Gengið er út frá því að spila 18 holur nema veður muni gefa sérstakt tilefni til annars og verður það þá tilkynnt nánar þegar nær dregur.

Af gömlum sið Nesklúbbsins mun liðið sem hefur tapað hingað til þurft að bregða sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir og þannig verður það að sjálfsögðu núna líka.

Þátttökugjald aðeins kr. 5.000 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur

Matseðill: Eitthvað alveg geggjað  að hætti Mario og co.

​Skráning er hafin á Golfbox (smella hér) og mun standa til kl. 13.00 fimmtudaginn 22. september.  ATH: það mun verður ekki tekið við skráningur eftir þann tíma þar sem gera þarf ráðstafanir fyrir matarinnkaup.

ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.

Mætum nú öll og kveðjum sumarið með stæl því þetta verður bara gaman.