ECCO forkeppni – úrslit

Nesklúbburinn Almennt

Forkeppni fyrir ECCO bikarkeppnina fór fram í dag.  Blíðskaparveður var fram eftir degi en undir kvöld komu skúrir öðru hverju.  Skor dagsins var í takt við veðrið og sáust oft á tíðum ansi glæsilegar tölur á skorkortum þátttakenda.  Helga Kristín Einarsdóttir átti sannkallaðan draumahring en hún kom inn á 65 höggum með forgjöf sem er frábær árangur.  Nökkvi Gunnarsson lék best allra án forgjafar en hann lék á 67 höggum eða fimm höggum undir pari vallarins.  Er þetta annað mótið í röð sem Nökkvi sigrar án forgjafar en hann sigraði einnig í BYKO vormótinu sem haldið var um síðustu helgi.  Í mótinu voru m.a. veitt nándarverðlaun á 8./17. holu fyrir að vera næst holu í tveimur höggum.  Svo skemmtilega vildi til að þrír  kylfingar, þeir Rúnar Geir Gunnarsson, Garðar Rafn Halldórsson og Oddur Óli Jónasson léku allir holuna á erni (tveimur höggum).  Var því dregið úr skorkortum  sem Oddur Óli vann.  Helstu úrslit urðu annars eftirfarandi:

Án forgjafar:

1. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 67 högg

2. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson – 69 högg

3. sæti – Haukur Óskarsson – 71 högg

Með forgjöf:

1. sæti – Helga Kristín Einarsdóttir – 65 högg

2. sæti – Gunnar Halldórsson – 69 högg

3. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 69 högg

Nándarverðlaun:

2./11. hola -Steinn Baugur Gunnarsson, 1.07 metar

5./14. hola – Eggert Rafn Sighvatsson, 43 cm.

8./17. hola í tveimur höggum –