Einnarkylfukeppni kvenna á þriðjudaginn

Nesklúbburinn Almennt, Kvennastarf, Póstlistar konur

Einnarkylfu keppni NK kvenna, þriðjudaginn 11.júní, kl.17.00

Hið vinsæla einnarkylfu keppni okkar fer fram á þriðjudaginn nk. 11.júní. Leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt mót fyrir allar konur sem eru meðlimir í Nesklúbbnum.

Mæting er kl.17:00.

Ræst verður út á öllum teigum kl.17:50 og spilaðar 9 holur.

Athugið, hámarksfjöldi í mótinu eru 63 konur – fyrstar koma, fyrstar fá.

Að móti loknu verður verðlaunafhending og kvöldverður í golfskálanum.

Verðlaun eru fyrir 1. – 3. sæti í punktakeppni, nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og lengsta upphafshögg á fyrstu braut.

Skráning fer fram inná golfbox eða með því að smella hér

Hlökkum til að sjá ykkur,
Kvennanefndin