Hver vill ekki njóta golfferðarinnar betur í haust? Það sem eftir lifir september og út október ætlum við að bjóða félagsmönnum upp á 20% afslátt af golfkennslu. Tilvalið til að vera betur undirbúin/n í golfferðina eða ef þú vilt einfaldlega skerpa á því sem betur má fara í golfsveiflunni þinni fyrir veturinn. Þið megið velja hvort kennslan fari fram á æfingasvæðinu úti á golfvelli eða í inniaðstöðunni á Nesvöllum. Hafðu hraðar hendur því tíminn flýgur – tilboðið gildir eins og áður segir út október.
Tímapantanir:
Gummi: gudmundur@nkgolf.is, 849-1996
Maggi: magnus@nkgolf.is, 615-0700