Pistlarnir hans Stuart vallarstjóra hér á heimasíðu klúbbsins hafa vakið mikla lukku á meðal félagsmanna. Þar hefur hann reglulega farið yfir ástand vallarins, hvað hann og hans teymi eru að gera hverju sinni og hvað er framundan. Stundum er ekki hjá því komist að slá aðeins á puttana á okkur og biðja okkur um að gera sumt betur og þannig er það í þessu tilfelli. Tökum það til greina og munum að gæði, fegurð og ástand vallarins eru á endanum undir okkur sjálfum komið. Íslensk þýðing fylgir hér neðar.
Dear Members,
With the Club Championship just around the corner, I need to address a few issues. Over the last few days, the number of unrepaired pitch marks on our greens has become completely unacceptable. Yesterday, I stood and watched three groups play the 3rd green. Not one player took the time to repair any additional pitch marks. After they had finished, I walked onto the green and stopped counting after finding 50 unrepaired pitch marks on the 3rd green alone.
This is simply not acceptable.
As a result, I had to send members of the greenkeeping team out for two hours to repair damage that should have been repaired by golfers during their round. Please repair your own pitch mark and take a few extra seconds to repair another one or two. If every golfer did this, we wouldn’t have this problem. Those hours should be spent improving the course, not fixing problems that we the members can easily prevent
Finally, the golf course is not a practice area. Please do not play multiple balls from the tees. If you want to practise, we have a driving range specifically for that purpose.
We all want the course to be presented at its very best, but that can only happen if every golfer takes responsibility for looking after it. Please show respect for the course, your fellow members, and the staff who work hard every day to maintain it.
With high hopes of improvements,
Stuart and the greenkeeping team
ÍSLENSK ÞÝÐING
Kæru félagar,
Með Meistaramótið rétt handan við hornið þarf ég að taka upp nokkur mál. Undanfarnar daga hefur fjöldi boltafara á flötunum okkar orðið með öllu óásættanlegur. Í gær stóð ég og horfði á þrjá ráshópa spila 3. flötina. Ekki einn leikmaður tók sér tíma til að laga neitt boltafar. Eftir að þessir hópar höfðu lokið leik, gekk ég á flötina og hætti að telja eftir að hafa fundið 50 boltaför á þessari einu flöt.
Þetta er einfaldlega ekki ásættanlegt.
Vegna þessa þurfti ég að senda starfsmenn út í tvær klukkustundir til að laga skemmdir sem kylfingarnir hefðu átt að laga sjálfir á meðan á leik stóð. Þessi tími okkar ætti að fara í að bæta völlinn, ekki að laga vandamál sem félagasmenn geta auðveldlega komið í veg fyrir.
Vinsamlegast lagið eigið boltafar og takið nokkrar aukasekúndur til að laga eitt eða tvö til viðbótar. Ef hver golfari myndi gera þetta, myndum við ekki eiga í þessu vandamáli og flatirnar okkar yrðu enn betri fyrir vikið.
Að lokum – golfvöllurinn er ekki æfingasvæði. Vinsamlegast spilið ekki mörgum boltum frá teignum. Ef þú vilt æfa að þá hefur klúbburinn æfingasvæði sérstaklega fyrir það.
Við viljum öll að völlurinn sýni sínar bestu hliðar hverju sinni, en það gerist aðeins ef hver og einn meðlimur tekur ábyrgð á að passa hann. Vinsamlegast sýnið virðingu fyrir vellinum, öðrum meðlimum og starfsfólkinu sem vinnur mikið á hverjum degi til að gera upplifun ykkar sem besta.
Stuart og vallarstarfsmenn