Frábær hreinsunardagur að baki

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Síðastliðinn laugardag héldum við hinn árlega hreinsunardag sem jafnan er upphafið á sumartímabilinu hjá klúbbnum.  Það voru í kringum 80 manns sem komu og unnu hin ýmsu verk til að gera völlinn okkar og nærumhverfi hans betra og fallegra fyrir sumarið.  Ómetanlegt með eindæmum og enn og aftur sýnir hvað við erum rík af ósérhlífnum sjálfboðaliðum.

Eftir mótið var svo annáluð pylsuveisla og í framhaldinu haldið 9 holu punktakeppni á „nýja“ vellinum okkar þar sem opnað var inn á sumarflatir í fyrsta sinn í sumar og 9. brautin leikin sem par 3 braut eins og hún verður leikin í sumar.  Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:

  1. sæti: Bjargey Aðalsteinsdóttir – 23 punktar
  2. sæti: Hákon Sigursteinsson – 22 punktar
  3. sæti: Pétur Orri Þórðarson – 21 punktur

Hann Guðmundur Kr. okkar, ljósmyndari, var að sjálfsögðu á staðnum og myndaði daginn.  Endilega farið inn á heimasíðuna hans naermynd.is eða með því að smella hér og skoðið, það gæti jafvel verið mynd af þér.

Takk fyrir frábæran dag kæru félagar – þið eruð æði

Stjórnin