Krían er loksins orpin þetta árið en um helgina sáust nokkur hreiður með eggjum í. Venjulega kemur krían í kringum 11. maí en þetta árið kom hún ekki fyrr en 25. maí sem hópur. Að öllu jafna verpir hún svo mánuði síðar þegar hún kemur á Suðurnesið sem kemur heim og saman við dagatal helgarinnar. Því miður er það kvíðvænlegt að hún sést ekki með sandsíli í gogginum heldur einungis hrognkelsa síli. Þess má einnig geta að æðarkolluhreiðrin umhverfis völlin voru talin um helgina og hafa þau ekki verið fleiri áður.