Lokamót NK kvenna

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar konur

Jæja kæru NK-dömur,

Nú er komið að Lokamótinu okkar þetta sumarið og ætlum við að klára sumarið með stæl.

Mótið verður haldið þriðjudaginn 5. september og eru leikreglurnar eftirfarandi:

Leikið er í tveimur forgjafarflokkum og miðað er við vallarforgjöf.
​Hámarksforgjöf gefin í mótinu er 42.  Hámarksforgjöfin hefur bara með útreikninginn til verðlauna að gera en að sjálfsögðu geta allar NK-konur skráð sig og verið með.

Forgjafarflokkur I: 0-22
Forgjafarflokkur II: 23-42

Við viljum vera vissar um að ná að klára fyrir myrkur og því er mæting kl. 16.00 og ræst verður út kl. 16.30 á öllum teigum.

Hámarksfjöldi í mótið er 70 NK-konur (við komum ekki fleiri fyrir) og því um að gera að vera snöggar að skrá sig því eins og alltaf hjá okkur er þetta bara „fyrst kemur – fyrst fær“.

Mótið er 9 holu punktakeppni og verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum ásamt verðlaunum fyrir besta skor án forgjafar.

Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og næst holu í tveimur höggum á 8. braut.

Að móti loknu verður verðlaunaafhending og boðið upp á ljúffengan mat.

Skráning er hafin á golfbox og stendur til mánudagsins 4. september kl. 13.00.

Þátttökugjald er kr. 4.900

Kveðja,
Elsa, Fjóla og Bryndís