Glæsilegt skor leit dagsins ljós í næst síðasta púttmóti vetrarins sem haldið var í dag og að öllum líkindum staðarmet þó ekki hafi það nú fengið staðfest enn. Dagur Jónasson sem þurfti nauðsynlega á sigri að halda til þess að eiga möguleika á sigri í heildarkeppninni lék holurnar 18 á 11 höggum undir pari. Hann lék fyrri 9 holurnar á 4 höggum undir pari og síðari 9 holurnar á 7 höggum undir pari eða á einungis 11 höggum sem er frábær árangur. Í öðru sæti var Haukur Óskarsson á 29 höggum og í þriðja sæti Steinn Baugur Gunnarsson, einnig á 29 höggum. Næsta sunnudag, þann 17. apríl, verður lokapúttmót vetrarins á milli kl. 11.00 og 13.00 að venju. Í beinu framhaldi verður svo úrslitamótið en þar hafa þátttökurétt þeir sem hafa endað í þremur efstu sætunum í einhverju af mótum vetrarins. Úrslit dagsins urðu annars eftirfarandi:
12 stig – Dagur Jónasson
10 stig – Haukur Óskarsson
8 stig – Steinn Baugur Gunnarsson
6,5 stig – Valur Guðnason
6,5 stig – Ágúst Þorsteinsson
5 stig – Jónas Hjartarson
4 stig – Gunnar Halldórsson
3 stig – Óskar Dagur Hauksson
2 stig – Grímheiður Jóhannsdóttir
1 stig – Dagný Oddsdóttir
Staðan í heildarkeppninni eftir mót dagsins er því eftirfarandi:
1. sæti – Dagur Jónasson – 93,5 stig
2. sæti – Valur Guðnason – 88 stig
3. sæti – Guðmundur Örn Árnason – 81,5 stig
4. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 62 stig
5. sæti – Ágúst Þorsteinsson – 54 stig
6. sæti – Haukur Óskarsson – 46,5 stig
7. sæti – Arnar Friðriksson – 36 stig
8. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson – 29 stig
9. sæti – Steinn Baugur Gunnarsson – 24,5 stig
10. sæti – Gunnlaugur Jóhannsson – 23 stig