Þriðja síðasta púttmótið var haldið í Laugardalshöllinni í dag. Oft hefur þátttakan verið meiri en engu að síður mættu rúmlega 20 kylfingar til leiks. Valur Guðnason sigraði með nokkrum yfirburðum á 28 höggum en næstir komu þeir Guðmundur Örn Árnason og Dagur Jónasson á 31 höggi. Í heildarkeppninni er heldur betur að færast fjör í leikinn þar sem að þessir þrír, þ.e. Valur, Guðmundur og Dagur eru allir jafnir með 81,5 stig og einungis tvö mót eftir. Stigagjöf dagsins var annars eftirfarandi:
12 stig – Valur Guðnason
10 stig – Guðmundur Örn Árnason
8 stig – Dagur Jónasosn
6,5 stig – Ágúst Þorsteinsson
6,5 stig – Arnar Friðriksson
5 stig – Gunnlaugur Jóhannsson
4 stig – Haukur Óskarsson
3 stig – Gunnar Halldórsson
2 stig – Grímheiður Jóhannsdóttir
1 stig – Kristinn Arnar Ormsson
Röð 10 efstu í heildarstigakeppninni er eftirfarandi:
1. – 3. sæti – Valur Guðnason – 81,5 stig
1. – 3. sæti – Guðmundur Örn Árnason – 81,5 stig
1. – 3. sæti – Dagur Jónasson – 81,5 stig
4. sæti – Nökkvi Gunnarsson – 62 stig
5. sæti – Ágúst Þorsteinsson – 47,5 stig
6. sæti – Haukur Óskarsson – 36,5 stig
7. sæti – Arnar Friðriksson – 36 stig
8. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson – 29 stig
9. sæti – Gunnlaugur Jóhannsson – 23 stig
10. – 11. sæti – Örn Baldursson – 17 stig
10. – 11. sæti – Einar M. Einarsson – 17 stig