FARIÐ VERÐUR EFTIR EFTIRFARANDI FYRIRKOMULAGI Í VAL SVEITA NESKLÚBBSINS FYRIR SVEITAKEPPNIR GSÍ 2011
A-sveit karla – 8 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 8 leikmönnum
– 5 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina í gegnum Mótaröð GSÍ og Meistaramót klúbbsins.
– Þjálfari velur 3 leikmenn. Skal hann velja þá leikmenn í samráði liðsstjóra.
- 3 efstu á Mótaröð GSÍ að loknu Íslandsmóti í höggleik spila sig inn í liðið
- 2 efstu í Meistaramóti Nesklúbbsins spila sig inn í liðið
- Verði um sömu menn að ræða í einhverjum tilvikum gefur 4. sæti á Mótaröð GSÍ og 3. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins þátttökurétt, þannig að fyrst er farið á GSÍ listann og síðan Meistaramótið.
A-sveit kvenna – 8 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 6 leikmönnum.
– 6 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina í gegnum Mótaröð GSÍ og Meistaramót klúbbins.
– Liðsstjóri í samráði við þjálfara klúbbsins velur 2 leikmenn.
- 3 efstu á Mótaröð GSÍ að loknu Íslandsmóti í holukeppni spila sig inn í liðið
- 3 efstu í Meistaramóti Nesklúbbsins spila sig inn í liðið
- Verði um sömu konur að ræða í einhverjum tilvikum gefur 4. sæti á Mótaröð GSÍ og 4. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins þátttökurétt, þannig að fyrst er farið á GSÍ listann og síðan Meistaramót.
- Til hliðsjónar við val á þeim tveimur leikmönnum sem liðstjóri velur skal horft til eftirfarandi móta: Galvin Green (GR), Forval (NK), opin mót í GK, opin mót á Nesvellinum. Einnig skal horfa til mótaraðar Neskvenna.
Piltar 18 ára og yngri – 6 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 6 leikmönnum.
– 4 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina í gegnum unglingamótaröð GSÍ og Meistaramót klúbbins.
– Þjálfari klúbbsins velur 2 leikmenn.
- 2 efstu á Mótaröð GSÍ að loknu Íslandsmóti í holukeppni spila sig inn í liðið
- 2 efstu í Meistaramóti Nesklúbbsins spila sig inn í liðið
- Verði um sömu drengi að ræða í einhverjum tilvikum gefur 3 . sæti á unglingamótaröð GSÍ og 3. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins þátttökurétt, þannig að fyrst er farið á GSÍ listann og síðan Meistaramót.
Drengir 15 ára og yngri – 6 leikmenn:

Stúlkur 18 ára og yngri – 6 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 6 leikmönnum.
– 4 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina í gegnum unglingamótaröð GSÍ og Meistaramót klúbbins.
– Þjálfari klúbbsins velur 2 leikmenn.
- 2 efstu á Mótaröð GSÍ að loknu Íslandsmóti í holukeppni spila sig inn í liðið
- 2 efstu í Meistaramóti Nesklúbbsins spila sig inn í liðið
- Verði um sömu stúlkur að ræða í einhverjum tilvikum gefur 3 . sæti á unglingamótaröð GSÍ og 3. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins þátttökurétt, þannig að fyrst er farið á GSÍ listann og síðan Meistaramót.
Stúlkur 15 ára og yngri – 6 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 6 leikmönnum.
– 4 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina í gegnum unglingamótaröð GSÍ og Meistaramót klúbbins.
– Þjálfari klúbbsins velur 2 leikmenn.
- 2 efstu á Mótaröð GSÍ að loknu Íslandsmóti í holukeppni spila sig inn í liðið
- 2 efstu í Meistaramóti klúbbsins spila sig inn í liðið
- Verði um sömu stúlkur að ræða í einhverjum tilvikum gefur 3 . sæti á unglingamótaröð GSÍ og 3. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins þátttökurétt, þannig að fyrst er farið á GSÍ listann og síðan Meistaramót.
Sveitakeppni eldri kylfinga, konur – 6 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 6 leikmönnum:
– 5 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina á LEK mótum og í Meistaramóti klúbbsins.
– Liðsstjóri í samráði við þjálfara klúbbsins velur 1 leikmann.
- 3 efstu leikmenn NK á stigalista LEK að loknu síðasta viðmiðunarmóti fyrir sveitakeppni.
- 2 efstu í Meistaramóti klúbbsins (miðað við fjóra leikna hringi)
- Verði um sömu leikmenn að ræða í einhverjum tilvikum gefur 3. sæti í Meistaramóti klúbbsins og 4. sæti á stigalista LEK þátttökurétt, þannig að fyrst er farið eftir Meistaramóti og síðan stigalista LEK.
Sveitakeppni eldri kylfinga, karlar – 8 leikmenn:
Sveit Nesklúbbsins til þátttöku í Sveitakeppni GSÍ 2011 verður skipuð að hámarki 8 leikmönnum:
– 3 leikmenn geta spilað sig inn í sveitina á LEK mótum og í Meistaramóti klúbbsins.
– Liðsstjóri í samráði við þjálfara klúbbsins velur 2 leikmenn.
- 3 efstu leikmenn NK á stigalista LEK að loknu síðasta viðmiðunarmóti fyrir sveitakeppni.
- 3 efstu í Meistaramóti klúbbsins (miðað við karlaflokk 55 – 69 ára).
- Verði um sömu leikmenn að ræða í einhverjum tilvikum gefur 4. sæti í Meistaramóti klúbbsins og 4. sæti á stigalista LEK þátttökurétt, þannig að fyrst er farið eftir Meistaramóti og síðan stigalista LEK: