Kick-off kvöld kvenna næsta þriðjudag

Nesklúbburinn Kvennastarf

Kæru NK Konur,

Nú er komið að hinu árlega Kick-off kvöldi okkar,  þar sem ætlunin er fyrst og fremst að koma saman, skemmta okkur og borða létta máltíð.

Hámarksfjöldi eru 80 NK konur og því gott að skrá sig sem fyrst.

Skráning hefst inni á Golfbox kl. 12.00, fimmtudaginn 28. apríl og Það þurfa allar að skrá þar inn sem ætla að mæta í síðasta lagi sunnudaginn 1. maí kl. 17.00.

Pútt-drottning vetrarins verður krýnd og óvæntur glaðningur. Við förum yfir mót sumarsins og nýjungar sem kvennanefndin stendur fyrir ásamt því að renna yfir fyrirhugaðar breytingar á vellinum. o.fl.

Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á að styrkja tengslin og sameinast um kröftugt spilasumar.

Sérstaklega viljum við bjóða nýjar félagskonur velkomnar en þetta kvöld er tilvalið til þess að kynnast og sjá hvað hið öfluga kvennastarf klúbbsins hefur upp á að bjóða.

Hlökkum til að sjá ykkur,

þriðjudaginn 3. maí   kl. 18.00,  fordrykkur, kvöldverður , kaffi og konfekt ásamt glaðningi greiðist á staðnum kr. 4.900,-

kveðja,
Fjóla, Elsa og Bryndís