Neskonur létu veðrið ekki á sig fá frekar en fyrri daginn þegar að fyrsta kvennamót sumarsins fór fram í gær. Ansi napurt var og oft á tíðum bálhvöss norðanátt sem gerði konunum erfitt fyrir. Engu að síður skráðu 29 konur sig til leiks og léku ýmist 9 eða 18 holur. Leikið er eftir punktafyrirkomulagi í báðum keppnum en einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor brúttó á 18 holum. Flesta punkta í 18 holu keppninni fékk Oddný Rósa Halldórsdóttir eða 33 punkta. Í 9 holu keppninni voru þrjár jafnar með 19 punkta, þær Margrét Mjöll Benjamínsdóttir, Ásdís Lilja Emilsdóttir og Hulda Bjarnadóttir. Eftir útreikninga var það Margrét Mjöll sem sigraði. Besta skori á 18 holum náði Sigrún Edda Jónsdóttir en hún lék á 92 höggum. Helstu úrslit urðu annars eftirfarandi:
18 holur – punktakeppni:
1. sæti – Oddný Rósa Halldórsdóttir – 33 punktar
2. sæti – Sigrún Edda Jónsdóttir – 32 punktar
3. sæti – Áslaug Einarsdóttir – 31 punktur
9 holur – punktakeppni:
1. sæti – Margrét Mjöll Benjamínsdóttir – 19 punktar
2. sæti – Ásdís Lilja Emilsdóttir – 19 punktar
3. sæti – Hulda Bjarnadóttir – 19 punktar
Besta skor á 18 holum:
Sigrún Edda Jónsdóttir – 92 högg
Nánari úrslit á golf.is. Vinningshafar geta nálgast verðlaun sín í veitingasölunni.